Spítukallarnir blogga..

.....

25.04.2008 13:47:07 / Böbbi

Heimferðin

jææjja.. nú er maður búinn að vera í mánuð herna í Kolding DK og er það buið að vera fínt.. það er ræs á morgun um 06:00.. og lest i 2 og hálfann tima til Köben og svo er það flugið heim..

Allavega er allt gott að frétta. erum að þrífa kofann herna til að við getum skilað honum sóma samlega.. allavega bið ég að heylsa heim..

Blöösssuð


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 15:52:59 / Böbbi

Skrepp í Kóngsins Köben...

Jújúú, við félagarnir vöknuðum klukkan 08:00 í gærmorgun, sko ég Linda og Kristján.. Því strákarnir voru farnir deginum áður.. en allavega þegar klukkan sló 8 þá opnaði eg augun og það tók bara á móti mér einhver helvítis pesti.. Hálsbólga, hósti og kvef andskoti.. En ég drattaðist í fötin og fórum niður á lestarstöð..  Við tókum lestina til Köben og vorum við 2 og hálfann tíma.. Jaaá það var svosem fínt en hef alveg lifað skemmtilegri klukkutima af... En svo komum við á lestarstöðina og löbbuðum utaf henni og vorum með smá brell i huga.. Strákarnir frá iðnskolanum sem eftir sátu heima voru komnir i köben og komu þeir strakunum á óvart.. þetta var Dimmeteringin þeirra, og viti menn, Oddur og Frikki höfðu keypt boli. JÁ Bleika boli sem á stóð ICELAND haha frekar fyndið, og fórum við þannig á strikið.. baara snilld.. Susé við Linda tókum þátt i dimmeteringunni þeirra... En allavega þá var rölt á strikið og ég enþá hálf slappur..

Svo var rölt til baka og eitthvað spókað sig þarna og inná hotelið hja strakunum.. Þar var spjallað og svona i rólegheitunum og svo kom að Tivoli-inu.. Ég sver það ég var búinn að gleyma hversu gaman þetta væri.. Fór i Róluna stórtu sem ég og fólkið ur BSVD fórum í síðastliðið haust og ég tók Badda á þetta þar.. Öskraði, ÉG ER AÐ FÁ ADRENALINE-KAST!!! heheheh og hló svo aagalega mikið.. En svo kom að rauða Rússíbananum og náðum við Didda og Kristjáni í hann... Lofthræddir menn en skelltu sér samt.. heheheh Diddi fýlaði þetta og Kristjæan reyndar líka, Nema hvað að KRistján NÖTRAÐI eftir ferðina.. og við fengum hann ekki í Fallturninn.. en áður en við skelltum okkur i fallturninn þá fór ég i leirdúfuhermirinn og setti metið í honum.. hitti allar gæsirnar.. þannig að gikk-fingurinn er glóð volgur..

En svo var haldið í Turninn góða.. SJIIITTTT.. þetta er aaagalegt kikk.. maður negglist bara niður þarna... Við fórum nokkrum sinnum i hann... en svo fór klikkan að slá í 00:00 og ég og Linda fórum á lestarstöðina og tókum lestina heim aftur.. Vorum komin heim i bústað um eitthvað 03:30.. helvíti fín ferð. en aaagalega gott var að komast i rummið herna "heima". Svo vaknaaði ég Björn Már Björnsson klukkan 13:30 í dag... ég bara jaahér.. hef aldrei sofið svona langt út.. en jææjja . svo sitjum við Linda herna utá palli og ég er bara í Kókinu, sannleikans sagt.. því eg er enþá drullu slappur...En svo ferð að líða að seinnihlutanum í þessari ferð okkar..

Svo að sjálfsögðu óska ég Dalvíkingunum til lukku með sína sigra..
Sonja Björk fyrir 1. sæti í ungfrú Norðurland
Eyþór Ingi fyrir glæstann sigur í Bandinu hans  Bubba

#Til hamingju#


Besu Kveðjur heim.. Böbbi og Linda.

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 14:31:47 / Böbbi

Eru menn að meina þetta..

Já ég spyr, ég fæ fréttir um það allann daginn að það sé allt að smekkfyllast af gæs heima.. ég er bara búinn að sjá 2 hérna í danmörku.. HELVÍTI.. það er eins gott að það verður einhver fyrir norðan sem að pússar hólkinn fyrir migáður en ég kem á klakann.. jaahéér...

En hvað um það.. þá er verið að leggja lokahöndina á þennan blessaða sumarbústað, okkur íslendingunum var hent inn í fínasta verkefni. Þ.a.e.s smíða valma þak með misjöfnum halla.. Kláruðum að teikna modelið á spónaplötu í dag og vorum byrjaðir að saga þetta eithvað til...
En þessi vist herna danmörku er buin að vera fín sko..

Það er búið að vera ansi rólegt hera hja okkur, allavega skólalega séð.. ekkert stress eða neitt.. Pálmi, Diddi og Einar skelltu sér i menningar-reisu til Hamburg í Þýskalandi og þótti sú ferð bara hin fínasta.. en ég, Linda og Kristján vorum bara eftir og t.d. kvöddum finnana, eða þessa 3 sem að fóru. svo skelltum við okkur á þriðjudaginn s.l. til Odinse þar sem eg hitti á gamla settið.. það var fínt..

En á morgun er ferð hja okkur sem erum að smíða þetta hús, farið verður á einhverja eyju sem heytir Römö og djöflast eithvað þar, skoðað einhver hús og tilheyrandi.. Síðan á að skella sér niður til Flensburg með þeim, allavega segir kennarinn að pepsi-ið sé mun ódyrara þar heldur en her i Kolding..8| ekki ætlum við að klikka á því...

Þess má til gamans geta að við skoppuðum i síðustu viku á eithvað safn arkitekta og þar voru svona 1500 stólar, og við öll að stein drepast í löppunum og allstaðar stóð. Please don't touch... sjitt lappirnar voru að springa, ég sver það..

En allavega þá er alveg kominn smá fiðringur i kappann að koma heim, maður er kominn með fráhvarfseinkenni frá þessu liði.. í VMA á dallas..

Þetta er svo hart að ég er farinn að kalla Kristján: Stjáni Pönk!
svo get ég ekkert kallað neinn Pengur eða Óli hehe ekki heldur skæli..
Bullað í vitleysingum á borð við Smára, Elvar, Sindra, eða neitt..
En hef það samt fínt það er ekki það.. það væri bara fínt að hafa ykkur fíflin ykkar...:haha:

En allavega þá er í framkvæmdum að setja inn myndir.. og að eru ekki 2 heldur 3..
hehe neei veit ekki en allavega heeellingur af myndum..
Bið að heylsa ykkur blesssuð..

Böbbi og Linda

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 17:24:36 / Böbbi

Sambandslaus vid netheiminn

Jæjja, eg sit herna i tolvu i Odense.. skrapp nebbla og kikkadi a vinafolk mommu og pabba og einhverra hluta vegna tha grof eg gamla settid upp thar.. hehe en allavega tha bist eg velvirdingar a bloggleysinu thvi ad eg er buinn ad vera netlaus heil lengi..

En hvad um thad.. tha hefur thessi skolavist gengid fint..thar er bara verid ad reksa sidasta nagglann a kagf i husid.. tha er hann klar.. ussususss.. en allavega tha nenni eg ekki ad sitja herna lengur og skrifa.. held ad netsambandid se ad detta inn heima i kolding.. thannig ad tha skrifa eg inn feikna frettir.. thar er margt sem thid eigid eftir ad vita um mig og mitt folk herna...

Kv: ur Odinse


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 19:07:42 / Böbbi

Skúffukakan góða..

jæjja á meðan hann Kristján dundar sér að gera glassúr þá ákvað ég að skella mér í tölvuna góðu og rita hérna niður smá hret..

Á laugardaginn skutlaðist ég til Århus til Gunna, ísaks og Freyju. Einnig lét Inga sjá sig lika.. heyrðu það byrjaði á að Ísak kom á lestarstöðina og náði i mig og við forum beinustu leið á einhvern bar þarna sem strákarnir fara alltaf til að horfa á fótboltaleiki.. horfðum á Arsenal-Liverpool og það endaði fínt.. svo héldum við heim til Ísaks og Freyju og sötruðum nokkra þar.. um svona hálf 7 leytið þá dreif ég mig i sturtu og græjjaði mig því við fórum á vistina þar sem Gunni heldur til í Idræthojskule...Heyriði.. það byrjaði á að ég labbaði þarna inn í svona skeifu eða eitthvað og labbaði framhja vistarherbergjunum.. dúndrandi mussik bara.. og löbbuðum svo inna herbergið til hans og sötruðum smá.. áður en ég vissi af þá var ég orðinn blekaður (hehehe sumir kannast við þessi orð) hahaha.. og ég og Gunni dönsuðum þarna alveg eins og herforingjar... En svo þegar liða tók á kvöldið var ég orðinn aansi dapur.. en hvað um það.. vaknaði heima hja ísak og Freyju og viti menn.. ég var svo þunnur að það hálfa væri meira en hellingur.. FOOOKKK. En svo eftir smá stund og gláp á Formúlunu fórum við niðrí bæ og horfðum á united leikinn.. ætluðum i golfhermi og viti menn ég BJÖRN MÁR cancelaði því.. og ákvað að drífa mig niðureftir í Kolding.. og Takk Gunni, Ísak, Freyja og Inga fyrir fínasta djamm í Århus...
Besta momentið átti Ísak þegar hann sagði: Hey Böbbi, viltu sjá stærstu Evrópu í eldhúsi.. hahahaha hann ætlaði að seigja viltu sjá stærsta eldhús í Evrópu.. haha:haha::haha:

En allavega svo kom ég heim og var svo skít þunnur enþá að ég fór í rúmmið um 9 leytið.. og vaknaði svo bara hálf 7 til að fara i strætóinn.. En dagurinn í dag var bara fínn sko hehe mánudagar eru bara til hálf 2 en það var smá reisugill..og sjáiði myndir af því..

Svo kíktum við í bæinn og löbbuðum um og eitthvað.. fengum okkur að borða og þannig.. svo komum við heim og fórum á trampolinið sem er herna fyrir utan og svo í frispí og þannig með Finnunum.. þetta er fínt sko.. En ég er að hætta að nenna þessu.. sko blogga nuna..

Þakka ég Strákunum í teikningu fyrir falleg orð í okkar garð..:haha:
Hey það eru nýjar myndir frá henni vélindu gömlu.. Tjekkiði á...

Kv: Böbbi og Linda H&M


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 15:59:35 / Böbbi

Myndir...

jújú hún  Linda setti inn nokkrar myndir sem þið ættuð endilega að skoða.. helvíti mikið varið i þetta.. En allavega þá er komin helgi hja okkur herna i í danmörku.. og það var klukkan hálf 2..!!! haha snilld maður..8| en allavega þá byrjaði dagurinn fint bara, komum okkur fljotlega að verki.. áttum að taka daginn í að reisa vinnupalla og eitthvað.. hehe vorum 45 min að því.. haha og áttum ekki að koma nálægt husinu en júú við vorum komin á kaf í husið áður en við vissum af.. bara gaman sko..

Smá side-seen inni daginn, Við íslendingarnir erum mest með dönunum.. húbbalarnir, ixe, gaxe, goggollo eða þúst meina Finnarnir loka sig eiginlega bara af og fara allir saman semsagt 5 að saga 2-5 í tvennt.. haha ruglaðir.. en annars eru við íslendingarnir í bland við danina.. mikið sko.. það er bara snilld.. Linda fór bara ein með einhverjum bauna og gerði vatnsbrettin.. hún er hvergi bangin kjellingin.. bítur ekkert á hana... jahér.. :haha:

En allavega þá er ég að spá í að skutla mér til Århus á eftir og hitta vini mína þar, Gunna og Ísak. það væri fínt, erum nebbla með frjálsa tíma bara herna um helgiar.. ætlum í Kóngsins köben næstu helgi og fara í Tivoli, ut að borða, á kenderí og margt.. svo ætlar skólinn að bjóða okkur í Legoland einhvern tímann.. þetta er æðislegt herna.. strákarnir, kennararnir og allir koma fram við mann bara eins og best er á kosið.. ég er hrifinn af þessu.. :haha:

Svo er frétt um okkur á www.vma.is og mynd af okkur og alles..

ps: Dóri, jakkarnir eru alltof fínir, tímum ekki einusinni að nota þá í skólanum... hahaha en ferðumst í þeim og alles og förum i þeim i skolann en bara u þeim áður en við setjum svuntuna á okkur.. bara geggjað.. þetta er fjölmennur skóli og skora á þig að koma út til okkar til að halda utan um okkur í smá tíma.. Það er svo margt sem þú verður að sjá hérna.. sem reyndar hefur séð áður..

en nenni ekki meiru..
Kv: Snikkeren og Tömerer


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 17:17:41 / Böbbi

3. dagur

:haha:Jæjja þá var ræs klukkan eitthvað hálf 7... og við klæddum okkur up í fína dressið sem við fengum og ég sver það að við bárum af... en glæsilegheitin byrjuðu á því að viðmisstum af strætó því við fórum á vitlausa biðstöð.. en það bjargaðist fyrir horn..
svo fórum við i morgunmat og byrjuðum korter yfir 8 og ég sver það að ég var rétt buinn að lyfta skrúvelinni þegar það var komið kaffi aftur... en jææjja svokomum við ur kaffi og i annað sinn þá lyfti eg upp skrúvélinni.. neineinei það var kominn MATUR!!! klukkan ELLEFU.... okei eftir matinn þá gerði ég 3 tilraunina og viti menn.. júúú þá var kominn hættutími.. þetta er baara bull herna..

En allavega þá var ég að skrufa gifsplöturnar á veggina fyrir utan, og lekta að innan
Linda tók að sér að gera vatnsbretti með einum dana og þau fúavörðu það og alles í dag..

Þannig aðáður en við byrjuðum var búið að reysa veggina á gólfið.. en ekki buið að einangra veggina eða gólfið.. en nuna eftir daginn þá er buið að setja gifsið á veggina fyrir utan, ulla veggina að innan og lekta þá lika.. Einnig áður en við hættum þá voru (hálf-valmarnir) Dóri, Stjáni og Óskar þið skiljið þetta.. nenni ekki að útskyra frekar.. og buið að setja allar sperrurnar upp.. þannig að þaðer bara komið hús... en allavega þá var fyrsti dagurinn baara snilld.. og aukaverkefni er að smiða sníða valmaþak, teikna teikningu í tölvuforritinu og kanski smíða snúinn stiga.. Þannig að haaahaaaa... við komum ut pæld á kakann..:haha:

en þarf að standa mig í pepsíinu..
Linda seigir að við séum i fyrirpartyjnu fyrir reisigillið.. oooww

Kv:Böbbi og Vatnsbrettið..

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 14:31:40 / Böbbi

06:45

Vaknaði ég værum svefni og dreif mig í sturtu.. og klappiði fyrir mér.. ég hafði það.. ástandið á okkur var ekkert geðslegt.. buin að vaka heil lengi og buin að ferðast mikið og já... skiftir ekki.. En ég fór á lappir því að Larssen sagðist ná í okkur klukkan 7.. Þaðan fórum við í skólann í morgunmat.. uuusss þetta var sko ekki mötuneytið í vma heldur í Kolding.. munurinn á mötuneytinu í vma og kolding er eins og ja sko ég veit ekki hvað.. Maturinn er bara hellings góður...
Næst fórum við í skoðanaferð í skolanum og kíktum á húsið sem er komið vel á veg.. Strákarnir bunir að græjja gólfið, reisa veggina og bua til sperrurnar.. þannig að verk okkar er held ég bara að svifta dúkinum af húsinu og fara bara.. hehe neinei það er fullt af verkum lika. t.d. að fara i tölvuforritið og treikna.. og als konar.. en eftir að hafa farið ur morgunmatnum til strákanna þá var bara komið kaffi.. hehe daninn er silki slakur sko.. ekkert stress.. og við tókum kaffi og fórum svo að kikka á aðra deild sem voru að gera valmaþak og svo annarhópur að smíða snúinn stiga.. hörku flott hjá þeim..

En svo eftir það þá var bara kominn matur.. hehe þá missti eg andlitið. nýbúin að taka síðasta sopann úr glasinu í kaffinu átti maður að fylla á það aftur í matnum.. jaa ég veit það að það mundi heyrast eitthvað í Dóra og Stjána pönk ef við værum SVONA graðir á kaffitimum og þannig..

En svo eftir hádegi fórum við niður í bæ að skoða okkur um og svona.. og ætlum að fá okkur eitthvað saman bara i husunum i kvöld.. en á morgun byrjar alvaran og þá forum við að smíða með strákunum.. fínt það..

Over and out: Böbbi og Vélinda


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 18:04:01 / Böbbi

Dvölin í Kolding

1. dagur..

Komum í kolding um hálf fimm í dag að dönskum tíma.. eftir rúmt 12 tíma ferðalag. Hittum strákana úr iðnskólanum kl 4 við hagkaupsteriuna við Kringluna.. og héldum þaðan útá völl.. á vellinum beið okkar ca. 2ja tíma bið sem var bara fín. flugið var 07:15 og lentum 12:15 á dönskum tíma... fórum svo með lest til Koldin sem tók 2og hálfann tíma.. Þegar við komum á tjaldstæðið þá beið okkar kofarnir.. ég sver það að þetta er ekki einus sinni fyrir bláann mann..:^) þetta er svo lítið og rúsínulegt að það hálfa væri meira en hellingur... þeir ætluðu að klístra okkur 5 strákum í sama kofann og ég sver kofinn var farinn að súra áður evið komumst allir inn.. þannig að við erum bara 3 hérna í einu húsi.. ég, Diddi og Kristján, sem eru algjörir öðlingar.. 8)
Linda er hinsvegar með finnskri stelpu og 2 íslenskum strákum.. (hún er að fýlaða)... En svo þegar að við vorum búnir að koma okkur fyrir þá fórum við með aðal kallinum i skolann og borða.. kjúklingur og hrísgrjón og eitthvað gumms...

Eftir matinn þá fórum við svo heim á leið og komum við í búð að kaupa okkur eitthvað sem rennur... Hérna er samt hundleyðileg rigning, byrjaði reyndar með sól og 8°C hita í kóngsins Kööbenhán.. en það var allur vindur úr því fljótlega.. Það á víst að batna með tímanum og á að vera gott um föstudag..:haha:

En á morgun þá er ræs klukkan 7 og þá er farið í morgunmat og skoðað skólann og farið svo niður í miðbæinn og skoðað þar eitthvað.. og svo er bara frí það sem eftir lifir dags.. Þessir Danir eru svo luunga mjúkir að það er æðislegt.. En núna sitjum við strákarnir bara inní húsinu að drekka pepsí og éta flögur og horfa á sjónvarpið..

Kem með meira á morgun.. fínt í dag..

Kv: Böbbi og Linda...


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 19:05:33 / Böbbi

Hotel Cabin

Jæjja góðir hálsar.. ég Tók beiðni Dóra og fleiri að blogga bókstaflega..

31.mars

Sit ég herna uppá herbergi nr. 473 að netast eitthvað.. Linda farin í búðarferð því hún tók töksu með sér nei fyrirgefðu herbergið sitt.. Kellingin var með 31KÍLÓ af einhverju sem ég veit ekki einusinni hvað er í töskuna sína.. þannig að hún ætlaði að reyna að splitta þessu eitthvað.:haha:
En svo ég segi ykkur það þá er þessi ferð ekkert bara skemmtiferð.. Við Linda tókum lyftuna uppá 4. hæð og ég skutlaði mér inní herbergið og lagðist í rúmið.. Þá byrjaði martöðin. ég horfði uppí loft og fór næstum því að grenja.. nei ég er ekki með heimþrá eða neitt.!!8) heldur eins og þið munið strákar þá kom Stjáni Pönk með kerfisloftaefni í tíma sl. fimmtudag og fræddi okkur um það.. en sko þessir menn sem settu þetta kerfisloft upp hafa verið svo blindfullir eða bara hálf sofandi við þetta verk.. því það gapir uppí loft meðfram hverri einustu plötu..hehe og eins og maður er nú ruglaður þá stóð ég uppí rúmminu með hendurnar á kafi í þessu að reyna að stilla þetta af.. hehe:evil:

En hvað um það þá var flugið bara hið besta og maður fékk fínt útsýni yfir hálendi Íslands:haha::haha: það er ræs hjá okkur klukkan hálf 4 í nótt.. það er bara harkan 6 strax fyrsta daginn.. En svo að Dóri viti það þá smíðum við held ég bara 1 hús að sögn Þórarins.. Það verður vonandi fínt bara.. En ég kem með eitthvað meira á morgun

Over and out.. Böbbi og Linda(sem er í töskuleiðangri)




» 10 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 18:27:39 / Böbbi

Leikhús draumanna...

já þakka ykkur fyrir pent.. það var flugeldasýning á Old Trafford í gærkvöldi þar sem Man Utd menn tóku á móti AS Roma.. það er ekki fyrir neitt sem að Old Trafford sé kallað leikhús draumanna... en ég nenni ekki að rita herna niður hverjir skoruðu því þá verð ég her fram eftir nóttu...

 

En hvað um það, páskarnir maður... Þeir lögðust vel í minn mann, ég staulaðist austur fyr fjall og alla leið á egilsstaði.. og það var sannkölluð snilld.. var hja Þóri bara eins og alltaf og það var aalveg geggjað... ég og Almar rendum niður á eskifjörð á ball og var það bara með því fínasta móti, svo var lika farið niðrí Mjóafjörð og brallað ýmislegt þar... bara gaman eins og alltaf..

 

En svo maður hlaupi yfir þennan tíma þá komu Maggi, Lára og Birkir austur á laugardeginum og ég fór með þeim heim til dalvikur þann sama dag...  En strax um kvöldið var tekið á því dottið í það og ves... bara gaman því það var svona fiskidagsstemning yfir barnum.. alir gömlu dallararnir mættir... en svo daginn eftir var ekkert slakað á og hent sér á akureyri í sjallann.. á Sjálfann Pál óskar...

 

En kominn með ritstíflu eða einhvern fjandann..

 

Over and out... 


» 18 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 22:10:26 / Böbbi

Geggjuð síða

blog.central.is/jonni60  

 

 

Er að fara blogga þar.......


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 01:30:20 / Böbbi

ALLVEG MÖKKAÐUR..................

SÍÐAN SEM KEMUR SKAPINU Í LAG HJÁ MÉR Í blogg síðum þÓRIR FRÆNDI.....................

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 15:00:48 / Böbbi

nú er allt um koll að keyra..

Þetta blogg stander orðið svo hart að ég er í heimsóknarkeppni við hann Þóri frænda.. þetta er það hart að hann hefur forustuna allavega það sem liðið er af degi.. en hvað um það.. þá seigi ég ekkert fræa blogg síðunni hans því ég er i sókn.. alveg bullandi sójn að honum.. 

 

Btw er að fara suður um helgina á Landsæfinguna og ætla ég að keyra þar sleðaum suðurlendið..

 

En kem vonandi með myndir inn eftir það

 

bless í bili.. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 09:26:18 / Böbbi

Man það ekki!

Góðann daginn.. jújú ég er svona stein vaknaður. veit ekki afhverju getur verið af því að ég er heimaveikur.. kemur kannski ekki á óvart að maður sé þá vaknaður.. en allavega er ég búinn að vera með þetta bull síðan held ég á fimmtudaginn.. en ég held að þetta sé að ganga yfir nuna.. helvettur..

 

En allavega þá er bara fínt að frétta, Mikael litli kom hérna um helgina og var eina nótt.. heh við horfðum saman á Formúluna og alltaf beið hann eftir "frænda" sínum Michael Schumacher.. hehe ég gaf honum neflilega úlpu þegar ég kom frá Kanarí með Nafninu  Michael Schumacher aftan á og Ferrari merkjum og eitthvað.. Guttinn illa sáttur með það.. En ég sagði honum bara að halda með rauða bílnum...

 

http://www.123.is/krillibomba/videos/1663141614.wmv

 

Hérna er eitt snilldar myndband.. tjekkiði á þessu það er bara snilld...

 

En ætla að reyna að koma með myndir inn frá Partýjinu á ytri vík.. setja inn myndir af handlaugnum og eitthvað.. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 152688
Könnun
Hver ertu?